«Útkall við Látrabjarg» by Óttar Sveinsson
Íslenska | ISBN: 9789935417084 | MP3@64 kbps | 6h 11m | 169.8 MB
Íslenska | ISBN: 9789935417084 | MP3@64 kbps | 6h 11m | 169.8 MB
rFimmtán Bretar berjast fyrir lífi sínu í miskunnarlausu brimróti á togaranum Dhoon, sem er standaður undir klakabrynjuðum veggjum Látrabjargs. Þeir eiga aðeins eina von – að fátækur bændur í nálægum bæjum bjargi þeim með því að síga með frumtæðum búnaði niður flughált og himinhátt bjargstálið. Hvernig á þá að koma heilli aðframkominni áhöfn alla leið upp á brún þegar skammdegismyrkrið ríkir í sautján klukkustundir á sólarhring? Kraftaverk þarf til.
Bresku skipbrotsmennirnir telja útilokað að nokkrum manni detti í hug að síga þarna niður. Við fylgjumst með þegar Íslendingarnir birstast óvænst og draga þá upp í stórgrýtið í björgunarstól. Bretarnir missa síðan alveg móðinn þegar þeim verður ljóst að þeir verða sjálfir að fara upp himinhátt bjargið í köðlum.
Í miðri björgun verður að hætta þegar myrkur skellur á. Þá verður enn ein þrekraunin ekki umflúin – björgunarmenn verða að gista í miðju bjargi, á Flaugarnefi, með sjö skipbrotsmönnum meðan þrír Íslendingar bíða með fimm þeirra niðri í fjörunni þar sem ógurlegt brimið svara við fætur þeirra. Það flæðir að. Nóttin “endalausa” er hafin.við fylgjumst einnig með hetjunum í Rauðasandshreppi bjarga skipbrotsmönnum af Sargon í foráttuveðri. Þetta er hörkuspennandi frásögn.