«Ískisur: 09 – Dauðasyndin I» by Blondie Electronics
Íslenska | ISBN: 9789178919222 | MP3@64 kbps | 32 min | 14.8 MB
Íslenska | ISBN: 9789178919222 | MP3@64 kbps | 32 min | 14.8 MB
Aðvörun: Ísfólkið er létterótískur bókabálkur og þ.a.l. er stundum rætt hispurslaust um kynlíf og önnur viðkvæm málefni í þáttunum. En verið hjartanlega velboðin í þetta ruglingslega ferðalag með okkur!
––-
Cesilja, dóttir Lífar og Dags, kemur heim til Danmerkur eftir viðburðarmikið frí í Noregi. Cesilja er ólétt eftir prestinn Martin og nú eru góð ráð dýr. Á sama tíma er besti vinur hennar, Alexander Paladin, á leið fyrir dómara vegna samkynhneigðar. En Cesilja deyr ekki ráðalaus og finnur lausn á vandamálum þeirra beggja.
Finnur Cesilja fyrir frumubreytingum? Er Cesilja kraftaverkakona? Er Hans hans Alla? Hvernig má skipuleggja opið hjónaband? Hversu langt tafl er of langt tafl? Mega konur vinna menn í skák? Eiga konur að kunna mannganginn yfir höfuð? Hvaðan kom sinin? Hversu langrækinn er Brandur?
Kisa vikunnar er kisukallinn Freddie Mercury.
ÍSKISUR - hlaupa reglulega fram úr sér