«Leikmaður kynnir Biblíuna: 1:3 – Þeim fannst rigningin ekki góð» by Leikmaður les Biblíuna
Íslenska | ISBN: 9789179251178 | MP3@64 kbps | 39 min | 18.1 MB
Íslenska | ISBN: 9789179251178 | MP3@64 kbps | 39 min | 18.1 MB
Afkomendur Adam og Evu eru mest megnis ömurlegt lið og Guð ákveður að besti kosturinn sé að eyða þeim öllum í flóði. Guði finnst Nói samt geggjaður gaur, og velur hann til þess að bjarga 2 (eða 7) af öllum dýrum jarðar með því að byggja rosalega stóra örk.
Leikmaður kynnir Biblíuna er hlaðvarp þar sem Stefán Birgir Stefáns (Leikmaður les Biblíuna á Facebook) fer yfir það merka rit sem Biblían er og kynnir hana fyrir hlustendum. Hver þáttur tekur fyrir kafla úr Bíblíunni, hvort sem það er Sköpunarsagan, Nóa Flóðið eða uppruni Páska, og skoðar hann út frá sögulegu og bókmenntafræðilegu sjónarhorni, jafnt og hvernig mismunandi útgáfur af kristni taka fyrir það sem kemur þar fram. Stefán hefur undanfarin áratug rekið Facebook síðuna Leikmaður les Biblíuna, en hann stofnaði síðuna eftir að hafa ákveðið að of margir væru að nota Biblíuna í vondum tilgangi og fannst mikilvægt að allir ættu að þekkja ritið; bæði það góða og það vonda.